Skráðu Fyrirtæki Þitt
Fylltu út formið hér að neðan til að skrá fyrirtæki þitt á Icelandic Info.
Skref 1: Grunnupplýsingar
Fyrirtæki
Kennitala
Netfang
Símanúmer
+354
Tengiliður
Áfram
Skref 2: Viðbótarupplýsingar
Vefsíða
Samfélagsmiðlar
Facebook
Instagram
Tripadvisor
Youtube
Twitter
Annar
Forgangur inn á vefinn (15.900 kr. + VSK)
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
Skilmálar
Skilmálar vegna áskriftar á auglýsingum og markaðssetningu á vef Icelandicinfo.is og .com sem er upplýsingavefur fyrir ferðamenn sem heimsækja Ísland.
Icelandicinfo er vefur sem að sérhæfir sig í markaðssetningu fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn og er vel kynntur á internetinu og kemur t.d. oft fyrir við leit á Google ofl. eins og áskrifanda var kynnt í sérstakri kynningu við kaup á áskrift. Jafnframt kynnir Icelandicinfo viðskiptavini sína á Facebook og prentar m.a. kynningar sem liggja víða frammi m.a. reglulega í Leifsstöð og víðar þar sem vísað er á vefinn
Skv. áskriftarskilmálum þessum, lofar seljandi áskriftar skv. útsendum reikningi, hér eftir nefndur Icelandicinfo að veita áskrifanda, hér eftir nefndur notandi fulla heimild til þess að vera áskrifandi á vefjum Icelandicinfo. Icelandicinfo mun markaðssetja hér eftir sem hingað til vefsíðu Icelandicinfo um allan heim og koma fyrirtæki notanda sem er í áskrift, þannig á framfæri gagnvart ferðamönnum.
Notandi lofar að halda þjónustuaðila óábyrgum gagnvart lögsóknum eða kostnaði, þ.á.m. eigin málskostnaði og kostnaði við vörn vegna mála er upp kunna að koma vegna vefsvæðis hans og innihald þess enda er sú heimasíða sem að notandi kynnir á vefjum Icelandicinfo rekin af óskyldum aðilum.
Ekkert í þessum samningi skal skilið þannig að Icelandicinfo sé samstarfsaðili, útgefandi eða í ritstjórn varðandi innihald vefsvæðis notanda. Báðir aðilar viðurkenna og samþykkja að Icelandicinfo beri enga ábyrgð á innihaldi vefsvæðis notanda, hvorki í máli eða myndum. Eina meðhöndlun Icelandicinfo á vef notanda er tæknilegs eðlis og sérstaklega vegna markaðssetningar og framsetningar á efni notanda svo það skili sér vel í kynningu gagnvart þriðja aðila og lýsi sem best starfsemi notanda.
Notandi samþykkir að greiða það gjald sem sett var fram við skráningu vefhýsingar og kynningar hans við upphaf skráningar. Áskrift fyrir þjónustu skal greidd fyrirfram fyrir hvert tímabil sem eru þrír mánuðir í senn vegna þess að sumir aðilar gera út á þjónustu við ferðamenn að vetri sumir að sumri eða allt árið. Áskriftargjald er sem stendur 27.900 kr.- + VSK. Uppsagnafresti lýkur einum mánuði áður en áskrift líkur og sé ekki tilkynnt um uppsögn, endurnýjast áskriftins sjálfkrafa um næstu fjóra mánuði. Landslög og venjur gilda um innheimtu reikninga, þ.m.t. varðandi innheimtukostnað og dráttarvexti. Engin önnur þjónusta eða aðstoð er innifalin í gjöldum fyrir áskriftina en sú sem kynnt er hér að ofan varðandi kynningu á fyrirtæki áskrifanda.
Icelandicinfo áskilur sér rétt til að hafna eða loka fyrir þjónustu án fyrirvara telji hann notanda hafa brotið gegn skilmálum þessum. Notandi hefur í því tilfelli enga kröfu á endurgreiðslu fyrir greidda þjónustu.
Icelandicinfo heldur í heiðri tjáningarfrelsinu. Vefsvæðið sem notandi hefur til umráða á síðum Icelandicinfo fær að halda sér óáreitt svo framarlega sem innihald þess brýtur ekki í bága við landslög svo sem eins og varðandi höfundarrétt eða ærumeiðingar (sjá lög nr. 30/2002 14. gr.) eða önnur lög. Vitneskja/grunur um að ólöglegt efni sé vistað á vefsvæði notanda mun leiða til umsvifalausrar lokunar á þjónustu og er notandi ábyrgur fyrir öllu innihaldi vefsvæða sinna eins og að framan greinir.
Þessi samningur gildir upphaflega í minnst tólf mánuði en framlengist síðan sjálfkrafa um tólf mánuði í senn eða þar til annarhvor aðili segir honum upp. Uppsögn má fara fram með tölvupósti frá netfangi sem sannanlega er í eigu viðkomandi eða með öðrum sannarlegum hætti.
Áskrifandi og Icelandicinfo, munu sameiginlega vinna markvisst að því að halda kynningu notanda við eftir bestu getu og endurnýja upplýsingar, myndir og texta eftir þörfum hverju sinni. Markmið með samvinnunni er sú að kynna á sem bestan hátt starfsemi áskrifanda fyrir ferðamönnum.
Ég hef lesið og samþykki skilmálar Icelandic Info
Hvað er 5 + 9?
Skrá fyrirtækið